
Sign up to save your library
With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.
Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Search for a digital library with this title
Title found at these libraries:
Loading... |
Í ævintýrinu um Úlfinn og kiðlingana sjö þarf geitamamma að skilja kiðlingana sína sjö eftir eina heima þegar hún fer út í skóg að leita að æti. Hún þekkir vel hætturnar sem leynast fyrir utan og varar kiðlingana við lævísa úlfinum sem býr úti í skóginum. Kiðlingarnir lofa að gæta sín og hleypa engum inn um dyrnar nema mömmu þeirra. Ekki leið þó á löngu þar til barið var að dyrum og dularfull rödd kallar og reynir að lokka þá til að hleypa sér inn. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.