
Sign up to save your library
With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.
Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Search for a digital library with this title
Title found at these libraries:
Loading... |
Frægasta vampírusaga allra tíma birtist loksins í heild sinni á íslensku. Gotneska hrollvekjan Drakúla eftir Bram Stoker er ein vinsælasta skáldsaga allra tíma sem hefur verið skrifuð á ensku. Allt frá því hún kom út árið 1897 hefur hún ávallt verið fáanleg. Á Íslandi kom sagan út í endursögn Valdimars Ásgeirs-sonar og birtist undir nafninu Makt myrkranna sem neðanmálssaga í tímaritinu Eimreiðin snemma á 20. öld. Einnig hafa birst endursagnir fyrir yngri lesendur en sagan í heild sinni hefur aldrei verið þýdd, fyrr en nú. Sagan er alþekkt og segir frá vampírunni Drakúla greifa og komu hans til Englands. Hann nýtur til þess aðstoðar Jonathans Harkers, sem er fulltrúi lögmannstofu í Lundúnum. Greifinn drekkur blóð úr nokkrum aðilum í Englandi, þeirra á meðal Minu Harker, eiginkonu Jonathans, og berst Harker, með aðstoða vina þeirra hjóna, m.a. Abrahams van Helsings, við greifann og að losa Minu undan áhrifum og bölvun Drakúla. Áhrif Drakúla verða seint vanmetin. Óteljandi kvikmyndir hafa verið gerðar þar sem greifinn kemur við sögu og hafa margir leikarar spreytt sig á hlutverki hans, m.a. Bela Lugosi, Gary Oldman og Christopher Lee. Þýðingu vann Gerður Sif Ingvarsdóttir.