Þessu lýkur hér

audiobook (Unabridged)

By Colleen Hoover

cover image of Þessu lýkur hér
Audiobook icon Visual indication that the title is an audiobook

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Download Libby on the App Store Download Libby on Google Play

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Library Name Distance
Loading...

Stundum er það sá sem maður elskar mest sem særir dýpst.

Lífið hefur ekki alltaf verið Lily auðvelt og hún hefur lagt hart að sér til að öðlast það sem hún þráir. Hún komst frá smábænum sem hún ólst upp í og útskrifaðist úr háskóla, flutti til Boston og stofnaði eigið fyrirtæki. Svo þegar hún kynnist sjóðheita heila- og taugaskurðlækninum Ryle Kincaid virðist tilvera hennar næstum of góð til að vera sönn.

Ryle er ákveðinn, þrjóskur, jafnvel svolítið hrokafullur, og hefur engan áhuga á samböndum, hvað þá hjónabandi. En Ryle er líka nærgætinn, klár og ansi hrifinn af Lily. Og Lily verður undantekningin frá bannað-að-deita-konur-reglu hans.

Þegar Atlas, fyrsta ástin hennar, verndari og sálufélagi, dúkkar óvænt upp myndast brestir í annars fullkomnu lífi Lily og hún stendur skyndilega í sporum sem hún bjóst aldrei við að verða í.

„Ef hjartað í þér slær þarftu að lesa þessa bók." – CAMI GARCIA – metsöluhöfundur New York Times # 1

COLLEEN HOOVER er margfaldur metsöluhöfundur yfir tuttugu bóka. Hún hefur þrisvar unnið Goodreads Choice Awards fyrir bestu ástarsöguna fyrir bækurnar Confess, Without Merit og Þessu lýkur hér (It Ends With Us).

ÞESSU LÝKUR HÉR er fyrsta bókin eftir Colleen Hoover sem kemur út á íslensku.

Þessu lýkur hér