Sign up to save your library
With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.
Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Search for a digital library with this title
Title found at these libraries:
Library Name | Distance |
---|---|
Loading... |
Við rannsókn á mannshvarfi árið 1988 bönkuðu lögreglumenn í Sacramento í Bandaríkjunum upp á í gömlu gistihúsi þar sem aldraðir utangarðsmenn og andlega veikt fólk átti athvarf. Þarna hafði verið síðasta heimilisfang mannsins sem hvarf.
Eigandi gistihúsins, Dóróthea Puente, var elskuleg gömul kona sem naut virðingar í samfélaginu fyrir líknarstörf sín. Engar vísbendingar fengust um mannshvarfið við þessa heimsókn. Þó voru lögreglumennirnir hugsi yfir ummælum eins dvalargestsins. Sá hafði sagt um að sumir íbúar í gistihúsinu hefðu fyrirvaralaust horfið á braut í skjóli nætur án þess að skilja eftir neinar upplýsingar um hvert þeir fóru. Auk þess hefðu stundum verið grafnar stórar holur í garðinu sem hefðu verið fullar að morgni. Hinn 11. nóvember 1988 sneru lögreglumennirnir aftur í gistihúsið, nú með skóflur í hendi. Í kjölfarið hófst rannsókn sem vakti heimsathygli á sínum tíma.