Sign up to save your library
With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.
Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Search for a digital library with this title
Title found at these libraries:
Library Name | Distance |
---|---|
Loading... |
Líkamslistamaðurinn er ein sérstæðasta skáldsaga bandaríska verðlaunahöfundarins Dons DeLillo. Hún er tólfta skáldsaga hans, næsta bók á eftir rúmlega 800 blaðsíðna epíska stórverkinu Underworld en skrifuð í allt öðrum anda og minnir knappur frásagnarmátinn á Beckett. Í bókinni segir frá listakonunni Lauren sem tekst á við djúpa sorg eftir að eiginmaður hennar styttir sér aldur. Bókinni er stundum lýst sem nútíma draugasögu. Laureen uppgötvar í einu herbergi hússins, þar sem hún og eiginmaður hennar höfðu búið sér heimili, dularfulla mannveru sem talar með rödd eiginmanns hennar. Hann svarar ekki spurningum hennar en fer með orðréttar setningar úr samtölum sem Laureen hafði átt við mann sinn og virðist með einkennilegum hætti „muna framtíðina".