Englar vatnsins

ebook

By Mons Kallentoft

cover image of Englar vatnsins

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Download Libby on the App Store Download Libby on Google Play

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Library Name Distance
Loading...

Dag einn í septembermánuði er Malin Fors kölluð út til að rannsaka morð í einu af fínni hverfum Linköping. Hjón hafa fundist látin í heitum potti við hús sitt. Fimm ára gömul uppeldisdóttir þeirra, Ella, er hvergi sjáanleg. Mikil leit hefst að barninu. Þung rigningarský hvíla yfir borginni og endurspegla hugarástand Malinar og samstarfsfólks hennar. Við rannsókn málsins verða óljós skilin milli lífs og dauða — milli góðs og ills.

Enn á ný neyðist Malin til að horfast í augu við eigin djöfla. Áfengið er freistandi flóttaleið frá veruleikanum. En hún má ekki bregðast Ellu litlu, hún verður að finna hana og klófesta þann sem myrti foreldra hennar.

Mons Kallentoft er einn af þekktustu höfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors, lögreglukonu í Linköping, hefur notið mikilla vinsælda. Englar vatnsinser sjötta bókin um Malin Fors en hinar fimm — Sumardauðinn, Haustfórn, Vetrarblóð, Vorlík og Fimmta árstíðin — hafa selst í meira en milljón eintaka og verið þýddar á 24 tungumál.

Englar vatnsins