Rómverjabréfið

audiobook (Unabridged) Biblían--Heilög ritning

By Biblían

cover image of Rómverjabréfið
Audiobook icon Visual indication that the title is an audiobook

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Download Libby on the App Store Download Libby on Google Play

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Library Name Distance
Loading...

Rómverjabréfið er sendibréf, eins konar umburðarbréf sem Páll postuli sendi hinum kristna söfnuði í höfuðborg rómverska ríkisins er hann var á leið þangað veturinn 57−58. Hvergi hefur Páll gert fyllri grein fyrir kenningu sinni en einmitt í Rómverjabréfinu og er bréfið því efnismikið og þrungið krafti mikillar sannfæringar. Eins og önnur bréf Páls skiptist það í kenningarlegan hluta annars vegar og hvatningarhluta hins vegar.

Páll er söfnuðinum ókunnugur nema af afspurn þar sem hann er ekki stofnandi hans. Hann hefur haft spurnir af því að mönnum sé ekki að fullu ljóst samband gyðingdóms og kristindóms og spenna ríki milli gyðingkristinna og heiðinkristinna í Róm. Því snýst bréfið að verulegu leyti um höfuðatriði gyðingdóms: réttlætinguna af trúfesti við lögmálið. Gegn þeirri kenningu setur Páll fram kenninguna um réttlætinguna af trúnni einni saman fyrir náð Guðs. Þá kenningu sækir hann í Biblíu frumkirkjunnar, Gamla testamentið, er hann túlkar í ljósi Krists. Páll boðar hér nýtt samband við Guð í persónu Jesú Krists er hinn trúaði hefur verið leystur undan valdi dauðans og hins illa með krafti heilags anda í lífi sínu, hinu nýja lífi í Kristi. Í niðurlagsköflum bréfsins, hvatningarhlutanum, fjallar Páll um þá þýðingu sem hið nýja líf andans hafi fyrir samlíf manna og leggur áherslu á kærleikann og ábyrgð kristins manns.

Skipting bréfsins

1.1−1.17 Inngangur, tilgangur bréfsins skýrður

1.18−11.36 Kenningarlegur hluti bréfsins

1.18−5.21 Hjálpræði boðast öllum mönnum sakir náðar Guðs

6.1−8.39 Hið nýja líf í trúnni á Krist og krafti heilags anda

9.1−11.36 Afstaða til Gyðinga

12.1−16.27 Hvatningarhluti bréfsins

12.1−15.13 Ávextir trúarinnar í nýju lífi

15.14−16.27 Fyrirætlanir Páls, kveðjur og blessunarbænir

Rómverjabréfið