Jobsbók

audiobook (Unabridged) Biblían--Heilög ritning

By Biblían

cover image of Jobsbók
Audiobook icon Visual indication that the title is an audiobook

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Download Libby on the App Store Download Libby on Google Play

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Library Name Distance
Loading...

Margir telja Jobsbók meðal snilldarverka heimsbókmenntanna. Hún fjallar um vandamál þjáningarinnar og hins illa. Hví þjáist hinn réttláti?

Í bókinni er sögð saga góðs og guðhrædds manns sem má þola hinar mestu þjáningar. Hann missir öll börn sín og eigur sínar og má að auki þola alvarlegan líkamlegan sjúkdóm. Í þremur ljóðabálkum bókarinnar eru samtöl Jobs og vina hans. Job heldur staðfastlega fram sakleysi sínu og deilir á Guð fyrir þær þjáningar sem hann hefur mátt þola. Vinir hans eru fulltrúar „rétttrúnaðarins" og halda því fram að ófarir Jobs hljóti að stafa af synd hans. Þeir trúðu þeirri kenningu að réttlátum mönnum mundi farnast vel en óguðlegum að sama skapi illa (sbr. Slm 1). Job missir ekki trú sína en sækir fast að verða réttlættur af Guði og endurheimta heiður sinn sem góður og réttlátur maður. Guð gefur ekki svör við þeim spurningum sem Job ber fram en sýnir honum hins vegar fram á sköpunarmátt sinn og vísdóm. Lausnina virðist Job finna í guðssamfélaginu (42.5).

Formáli og eftirmáli bókarinnar skera sig mjög úr meginhluta hennar sem er allur í bundnu máli og í formi samræðna og/eða deilna.

Skipting ritsins

1.1–2.13 Formáli

3.1–31.40 Job og vinir hans

3.1–3.26 Angurljóð Jobs

4.1–14.22 Fyrsti ræðukafli

15.1–21.34 Annar ræðukafli

22.1–27.23 Þriðji ræðukafli

28.1–28.28 Ljóð um spekina

29.1–31.40 Lokaræða Jobs

32.1–37.24 Ræður Elíhú

38.1–42.6 Samtal Guðs og Jobs

42.7–42.17 Eftirmáli

Jobsbók