Fyrsta Mósebók

audiobook (Unabridged) Genesis · Biblían--Heilög ritning

By Biblían

cover image of Fyrsta Mósebók
Audiobook icon Visual indication that the title is an audiobook

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Download Libby on the App Store Download Libby on Google Play

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Library Name Distance
Loading...

Alþjóðlegt heiti Fyrstu Mósebókar, Genesis, merkir upphaf, sköpun eða tilurð. Í henni er fjallað um sköpun heimsins, uppruna mannkyns og upphaf syndar og þjáningar í heiminum. Sagt er frá frumþjóðum heimsins og hvernig Guð kom til móts við Hebrea. Fyrirheit Guðs til ættfeðra Ísraelsþjóðarinnar eru snar þáttur í bókinni en hún fjallar öðru fremur um afskipti Guðs af mönnum við margvíslegar aðstæður. Segja má að Guð fari með aðalhlutverkið í bókinni allri. Hann leiðir ættfeður hinnar útvöldu þjóðar, hjálpar henni í nauðum og dæmir og refsar þeim sem ranglega breyta. Jafnvel þótt Guð virðist í fljótu bragði ekki koma mikið við sögu í Jósefssögunni (35.–50. kafla) birtist lykilatriði hennar í 50.20 þar sem segir: „Þið ætluðuð að gera mér illt en Guð sneri því til góðs. Hann vildi gera það sem nú er orðið og þannig varðveita líf margra."

Skipting ritsins

1.1–2.5 Sköpun heims og mannkyns

3.1–3.24 Upphaf syndar og þjáningar

4.1–5.32 Frá Adam til Nóa

6.1–10.32 Nói og flóðið

11.1–11.9 Babelturninn

11.10–11.31 Frá Sem til Abrams

12.1–35.29 Ættfeðurnir: Abraham, Ísak og Jakob

36.1−36.43 Niðjatal Esaú og Edómíta

37.1–45.28 Jósef og bræður hans

46.1–50.26 Ísraelsmenn í Egyptalandi

Fyrsta Mósebók