Fimmta Mósebók

audiobook (Unabridged) Deuteronomium · Biblían--Heilög ritning

By Biblían

cover image of Fimmta Mósebók
Audiobook icon Visual indication that the title is an audiobook

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Download Libby on the App Store Download Libby on Google Play

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Library Name Distance
Loading...

Alþjóðlegt heiti Fimmtu Mósebókar, Deuteronomium, er dregið af grísku og latnesku heiti bókarinnar og merkir „annað lögmál". Er þá vísað til 5Mós 17.18 þar sem talað er um „afrit á bók af þessum lögum" handa konunginum. Ritinu er skipt upp í ræður sem Móse flytur þjóðinni í Móabslandi þangað sem hún er komin eftir langa óbyggðagöngu og er í þann mund að halda inn í Kanaansland. Þá eru boðorðin tíu kynnt og sett fram með nokkuð öðrum hætti en í 2Mós 20.1–20.17. Þau eru eins konar lykill að hugmyndum, byggingu og málfari ritsins. Þannig er fyrsta boðorðið umritað og skýrt hvað eftir annað út frá ólíkum viðhorfum og aðstæðum.

Í boðinu um að allt helgihald Ísraels skuli fara fram á einum helgistað, „staðnum sem Drottinn mun velja" (12.5), er fólgin grundvallarregla og megintrúarhugmynd ritsins.

Fimmta Mósebók er sett fram eins og kennslubók í lögmáli Drottins. Móse er valinn af Drottni til að kenna það og er allt ritið lagt honum í munn nema nokkur vers í 31. og 34. kafla. Þekking á lögmálinu átti að verða til þess að fólkið lærði að virða Guð og boð hans svo að það uppskæri blessun hans.

Jósúa er kynntur sem næsti leiðtogi þjóðarinnar. Eftir að Móse hefur í ljóði lofað trúfesti Guðs deyr hann í Móabslandi austan við Jórdan.

Lykilvers ritsins eru í 6.4–6.6 og geyma þau orð sem Jesús kallaði æðst allra boðorða.

Skipting ritsins

1.1–4.49 Fórnir frá Egyptalandi

5.1–26.19 Boðun lögmálsins

5.1–10.22 Boðorðin tíu

11.1–26.19 Lög, reglur og viðvaranir

27.1–28.68 Fyrirmæli um sáttmálshátíð

29.1–30.20 Sáttmálinn endurnýjaður í Móab

31.1–33.29 Síðustu orð Móse

34.1−34.12 Móse deyr

Fimmta Mósebók