Esterarbók

audiobook (Unabridged) Biblían--Heilög ritning

By Biblían

cover image of Esterarbók
Audiobook icon Visual indication that the title is an audiobook

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Download Libby on the App Store Download Libby on Google Play

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Library Name Distance
Loading...

Bókin lýsir því hvernig Gyðingastúlkan Ester verður drottning í Persaveldi. Henni tekst með aðstoð fósturföður síns, Mordekaí, að afstýra ofsóknum gegn Gyðingum í löndum Persakonungs sem valdsmaðurinn Haman, erfðafjandi Gyðinga, hyggst stofna til. Gyðingar vinna sigur á óvinum sínum, halda „púrímhátíð" og gera niðjum sínum skylt að halda slíka hátíð framvegis til minningar um þennan atburð.

Mönnum hefur löngum orðið starsýnt á hið veraldlega yfirbragð Esterarbókar sem ljær henni nokkra sérstöðu meðal bóka Gamla testamentisins. Nafn Guðs er þar hvergi að finna og íhlutun æðri máttarvalda í rás atburða er einungis gefin til kynna með óbeinum hætti (sbr. 4.14 og 6.1). Í hebresku ritningunum er Esterarbók valinn staður með Rutarbók, Prédikaranum, Harmljóðunum og Ljóðaljóðunum. Í gyðinglegum sið er bókin tengd hinni árlegu „púrímhátíð" sem haldin er u.þ.b. mánuði fyrir páskahátíð Gyðinga. Þá er bókin lesin upp og frelsun Gyðinga, sem þar er lýst, fagnað með veitingum og söng. Engin bók Gamla testamentisins er varðveitt í fleiri handritum og má af því marka vinsældir hennar meðal Gyðinga. Í grískri þýðingu Gamla testamentisins er Esterarbók allmiklu lengri og ætlaður staður meðal Apókrýfu bókanna. 

Esterarbók