Bronsharpan

ebook Dulstafir

By Kristín Björg Sigurvinsdóttir

cover image of Bronsharpan

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

Download Libby on the App Store Download Libby on Google Play

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Library Name Distance
Loading...

Þarna var hún! Á upphækkuðum palli var skjannahvít stytta af konu. Hún sat á lágum kolli með bronslita hörpu í fanginu. Roðagullið bronsið var áberandi í marmarahöndunum og það glampaði á hljóðfærið í sólskininu. Elísa nálgaðist listaverkið, gjörsamlega hugfangin. Umhverfis styttuna var lágt grindverk. Á því hékk þunn steinplata með áletruninni: Belinda og harpan.

Nýr andstæðingur. Nýir bandamenn. Meiri máttur.

Rúmu ári eftir ævintýrið í hafinu er Elísa skyndilega stödd í ókunnum heimi. Þar kynnist hún fjórum ungmennum sem hafa svipaða krafta og hún. Gæslumenn grunnefnanna hafa verið kallaðir saman til að bjarga deyjandi heimi. En tekst þeim ætlunarverk sitt?

Kristín Björg Sigurvinsdóttir útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2018 en ákvað svo að elta gamlan draum. Dóttir hafsins var hennar fyrsta skáldsaga og var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Bronsharpan er önnur bókin í bókaflokknum Dulstafir.

Bronsharpan